mobile navigation trigger mobile search trigger
28.12.2022

Engin akstur strætisvagna í Fjarðabyggð 29.12.22

Slæmt veður gengur yfir austurland í nótt og morgun, og hefur Veðurstofa Íslands gefið út gula veðurviðvörun sem gildir frá kl. 21:00 þann 28.12 til 06:00 þann 29.12. Gera má ráð fyrir að færð spillist af þessum sökum.

Í samráði við akstursaðila almenningssamganga í Fjarðabyggð hefur þess vegna verið ákveðið að strætisvagnar munu ekki aka á morgun, fimmtudaginn 29.12.2022.

Eins er útlit fyrir að ekki verði hægt að aka fyrstu ferðir morgunsins þann 30.12 - Nánari tilkynning varðandi það mun verða gefin út á morgun.

Frétta og viðburðayfirlit