mobile navigation trigger mobile search trigger
24.11.2016

Grunnvatnsstaða í byggð neðan fyrirhugaðra varnargarða í Neskaupstað

Fjarðabyggð mun láta fylgjast með grunnvatnsstöðu í byggð neðan fyrirhugaðra varnargarða undir Urðarbotnum og Nes- og Bakkagiljum á Norðfirði.

Grunnvatnsstaða í byggð neðan fyrirhugaðra varnargarða í Neskaupstað

Fjórar grunnvatnsholur verða undir Urðarbotnum og sex undir Nes- og Bakkagiljum.  Fyrstu hugmyndir um staðsetningu holanna eru sýndar á teikningu. Til samanburðar verður ein hola utan áhrifasvæða garðanna.

Holurnar verða boraðar á næstunni, ef veður leyfir.  Þrýstiskynjurum / vatnsborðsmælum verður komið fyrir í holunum. Skynjararnir mæla og vista grunnvatnsstöðu á klukkutíma fresti og senda niðurstöður áfram daglega. Þannig má fylgjast með grunnvatnsstöðu í rauntíma. Miðað er við að mæla grunnvatnsborðið í tvö til þrjú ár. Fylgst verður með grunnvatnsstöðu á framkvæmdatíma og í nokkur ár eftir að framkvæmdum lýkur. Upplýsingum úr veðurstöðvum verður jafnframt safnað.

Fleiri myndir:
Grunnvatnsstaða í byggð neðan fyrirhugaðra varnargarða í Neskaupstað

Frétta og viðburðayfirlit