mobile navigation trigger mobile search trigger
29.12.2022

Staða mála vegna rafmagnsleysis á Reyðarfirði

Núna kl. 16:00 funduðu fulltrúar Fjarðabyggðar með Rarik þar sem farið var yfir stöðu mála vegna rafmagnsleysisins sem varð á Reyðarfirði. 

Staða mála vegna rafmagnsleysis á Reyðarfirði

Klukkan 13:45 voru allir almennir viðskiptavinir komnir með rafmagn á Reyðarfirði og nágrenni. Það er ekki alveg ljóst hvers vegna spennirinn leysti út og það mál þarf að skoða betur. Vísbendingar eru um að bilunin sé enn til staðar. Það gæti þurft að fara í frekari aðgerðir til að kanna það nánar. Því getur fylgt tímabundið rafmagnsleysi. Allt skipulagt rafmagnsleysi verður tilkynnt til viðskiptavina sem fyrir því verða. Það er verið að flytja varaafl og varaspenni á svæðið sem verður til taks þar til reksturinn er kominn í eðlilegt ástand aftur. Einnig verður undirbúinn sá möguleiki að geta tengst við spenni Landsnets með stuttum fyrirvara ef á þarf að halda.

Frétta og viðburðayfirlit