mobile navigation trigger mobile search trigger
11.10.2016

Breyting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 ásamt tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæðis

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin fellst í að reitur O5 stækkar um 11,6 ha.

Samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði skv. 41. gr. laga nr. 123/2010. Tillagan skilgreinir búfjársvæði í landi Kirkjubóls í Norðfirði. Markmið skipulagsins er að ákvarða staðsetningu lóða fyrir hesthús og annan frístundabúskap, skilgreina vallar- og beitarsvæði ásamt umhverfi.

Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugáttum í bókasöfnunum á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði frá og með 14. október 2016 til og með 25. nóvember 2016. Athugasemdarfrestur er til sama tíma.

Tillögurnar verða einnig til sýnis á heimasíðu Fjarðabyggðar, fjardabyggd.is: Kirkjuból breytingartillaga Aðalskipulag og  Kirkjuból tillaga að deiliskipulag og greinargerð.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Frétta og viðburðayfirlit