mobile navigation trigger mobile search trigger
27.06.2025

Skotgengur að ljósleiðaravæða í Fjarðabyggð

Míla, í samstarfi við Fjarðabyggð, hefur á síðustu mánuðum unnið að lagningu ljósleiðara í Fjarðabyggð. Fyrsti áfangi er unninn á þessu ári og miðar að því að tengja öll fyrirtæki og heimili á Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað við ljósleiðarakerfi Mílu. Verkið hefur unnist hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir og hefur samvinna við íbúa verið til fyrirmyndar.

Nú eru öll heimili á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði að fullu tengd. Í Neskaupstað eru jarðvegsframkvæmdum nánast lokið og unnið verður að tengingu heimila og fyrirtækja í sumar og fram á haust. Þá ættu flestir Norðfirðingar að vera komnir með aðgang að ljósleiðara og þeir síðustu tengdir í haust. Á Fáskrúðsfirði er unnið jöfnum höndum að jarðvegsframkvæmdum og tengingum og gert ráð fyrir að verkefninu verði lokið í haust.
Hönnun ljósleiðaralagningar fyrir Reyðarfjörð og Eskifjörð er í undirbúningi og gert ráð fyrir að hönnun ljúki fyrir áramót og framkvæmdir hefjist næsta vor.

Frétta og viðburðayfirlit