mobile navigation trigger mobile search trigger
18.06.2025

Vel heppnuð hátíðahöld á 17. júní

Hátíðahöld Fjarðabyggðar vegna 17. júní á Breiðdal voru vel sótt og afar vel heppnuð. Skipulag dagskrárinnar í ár var í höndum Ungmennafélagsins Hrafnkels Freysgoða.

Vel heppnuð hátíðahöld á 17. júní

Dagskráin var að vonum fjölbreytt. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar flutti hátíðarræðu og að henni lokinni var komið að ávarpi fjallkonunar. Hlutverk fjallkonunar í ár var í höndum Gróu Jóhannsdóttur, frá Hlíðarenda í Breiðdal sem flutti ljóðið Breiðdælingaóður, eftir Guðjón Sveinsson og Kjartan Ólafsson.

Að þessu loknu var áfram ljúf og notaleg stemmning við Frystihúsið. Hoppukastalar voru fyrir börnin, sápukúlufjör og andlitsmálun sem var í umsjón Skapandi sumarstarfa.

Dagurinn var eins og áður sagði ákaflega vel heppnaður og vill Fjarðabyggð koma á framfæri þökkum til þeirra sem mættu, og ekki síður til félaga í Ungmennafélaginu Hrafnkels Freysgoða sem áttu veg og vanda að skipulagi dagsins sem var til mikils sóma.

Fleiri myndir:
Vel heppnuð hátíðahöld á 17. júní
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar flutti hátíðarávarp
Vel heppnuð hátíðahöld á 17. júní
Fjallkonan Gróa Jóhannsdóttir frá Hlíðarenda í Breiðdal flutti ljóðið Breiðdælingaóður
Vel heppnuð hátíðahöld á 17. júní

Frétta og viðburðayfirlit