mobile navigation trigger mobile search trigger
26.06.2025

Fyrsta rannsóknasetur HÍ á sviði menntavísinda opnað á Eskifirði

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna nýs rannsóknaseturs Háskóla Íslands sem staðsett verður á Eskifirði. Um er að ræða fyrsta rannsóknarsetur Háskóla Íslands á sviði menntavísinda.    

Fyrsta rannsóknasetur HÍ á sviði menntavísinda opnað á Eskifirði
Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, handsala viljayfirlýsingu um nýtt rannsóknasetur HÍ á Eskifirði. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í setrinu verður fyrst um sinn annars vegar lögð áhersla á rannsóknir á inngildingu og fjölbreytileika nemendahópa í sveitarfélögum og hins vegar aukinn stuðning við kennslu í íslensku sem annað mál og þróun skólaþjónustu. Þá eru einnig spennandi rannsóknaviðfangsefni á sviðum eins og upplýsingatækni og nýsköpun í menntun, breytingum og þróun á kennsluháttum og fjarnámi og stöðu menntunar á landsbyggðinni. 

Eflir menntarannsóknir og styður við skólaþróun

Viljayfirlýsing menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins, Háskóla Íslands og Fjarðabyggðar lýtur að fjármögnun reksturs setursins og ráðningu forstöðumanns en starf hans verður auglýst á næstunni. Sérfræðisvið forstöðumannsins mun hafa áhrif á áherslur við val verkefna en jafnframt er stefnt að því að áherslur og markmið setursins verði mótuð í samvinnu við sveitarfélög á svæðinu. Þá verður einnig leitað eftir samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og forstöðumaður mun jafnframt vinna með fræðafólki og stjórnendum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. 

„Stofnun fyrsta rannsóknarseturs Háskóla Íslands á sviði menntavísinda markar tímamót. Þetta er mikilvægt skref til að efla menntarannsóknir, styðja við skólaþróun og fjölbreytileika í menntun. Ég fagna því sérstaklega að Háskóli Íslands styrki starfsemi sína á landsbyggðinni. Háskólastarfsemi á að eiga sér stað um allt land og í nánu samtali við samfélögin. Að setrið verði til húsa í gamla barnaskólanum á Eskifirði, sem nú hefur verið endurgert með glæsibrag, er bæði táknræn og mikilvæg tenging við menntakerfið og sögu svæðisins,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra.

„Það er afar ánægjulegt að uppbygging fyrsta rannsóknaseturs Háskóla Íslands á sviði menntavísinda verði hér á Austurlandi. Þetta er stórt framfaraskref fyrir menntamál á Austurlandi og landinu öllu og skapar vettvang fyrir öflugt rannsóknastarf sem byggir á raunverulegum áskorunum og tækifærum í nærumhverfi samfélaga á landsbyggðunum. Setrið mun starfa í fallegri umgjörð nýuppgerðs húss og við hlökkum til að taka þátt í mótun og þróun setursins í nánu samstarfi við Háskóla Íslands og ráðuneytið – og þannig styðja við fjölbreyttara og öflugra skólastarf í landshlutanum,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar.

Þrettánda rannsóknasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni 

Rannsóknasetrið verður hluti af Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands. Innan stofnunarinnar eru þegar starfrækt 12 sjálfstæð rannsóknasetur víða um land sem eru vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Rannsóknir tengdar samfélagi og lífríki eru meginviðfangsefni rannsóknasetranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast nærumhverfi setranna með einhverjum hætti. Rannsóknir setranna beinast m.a. að hvölum, nytjafiskum, fuglum, jöklum, samspili manns og náttúru, umhverfismálum, sagnfræði, þjóðfræði, jarðvísindum og málvísindum.

„Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að þjóna landinu öllu og vera þannig háskóli allra landsmanna. Ég fagna því að hér sé verið að koma á fót þriðja rannsóknasetri Háskóla Íslands á Austurlandi og því fyrsta, í hópi þeirra þrettán setra sem HÍ er með um landið, þar sem rannsóknir í menntavísindum verða í forgrunni. Óhætt er að segja að starfsemi rannsóknasetranna hafi eflst og sannað mikilvægi sitt á síðustu tveimur áratugum, bæði hvað varðar rannsóknir, háskóla- og atvinnustarfsemi víða um land og náin tengsl við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Rannsóknasetrið yrði annað setur Háskóla Íslands í sveitarfélaginu en fyrir er Rannsóknasetur HÍ á Breiðdalsvík þar sem megináherslan er á jarðvísindi og málvísindi. Einnig er fyrir Rannsóknasetur HÍ á Austurlandi, með starfsstöð á Egilsstöðum, en yfirmarkmið þess er rannsóknir á tengslum manns og náttúru. 

 

Frétta og viðburðayfirlit