mobile navigation trigger mobile search trigger
27.06.2025

Hernámsdagurinn endurvakinn á Stríðsárasafninu laugardaginn 5. júlí

Klukkan 14:00-16:00

Frítt verður inn á safnið og boðið upp á súkkulaðiköku. Þá leiðir Þóroddur Helgason sögugöngu um bæinn, Gauti Páll sagnfræðingur segir frá Íslendingum sem létust af völdum hersins og fulltrúar bæjarins segja frá komandi framkvæmdum á húsnæði safnsins.

Hernámsdagurinn endurvakinn á Stríðsárasafninu laugardaginn 5. júlí
Hátíðardagskrá verður við safnið og eru allir íbúar hvattir til að líta við:
14:00 Þóroddur Helgason leiðir sögugöngu frá Molanum upp að safni.
Sögur sagðar úr hernáminu og bæjarsögunni. Þægileg og fróðleg ganga fyrir fólk á öllum aldri.
14:45 Súkkulaðikaka, kaffi og mjólk.
14:45 Marc Alexander Fulchini listamaður frumsýnir myndbandslistaverkið Hernám í Bíóbragganum.
15:00 Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri flytur ávarp.
15:10 Fulltrúar bæjarins kynna stöðu endurreisnar safnsins og framtíðaráform í Bragganum
15:30 Gauti Páll Jónsson sagnfræðingur segir frá Ásmundi Elíassyni Mjófirðingi og öðrum Íslendingum sem létust af völdum hersins í Bragganum.
Gauti hefur undanfarin ár rannsakað samskipti hers og þjóðar með sérstaka áherslu á Íslendinga sem létust hérálandi vegna erlendra hermanna. Þetta er fyrirlestur sem enginn áhugamaður um sögu stríðsáranna má missa af.
Fleiri myndir:
Hernámsdagurinn endurvakinn á Stríðsárasafninu laugardaginn 5. júlí

Frétta og viðburðayfirlit