mobile navigation trigger mobile search trigger
24.01.2019

Frekari liðveisla á Reyðarfirði

Starfsfólk óskast í frekari liðveislu á Reyðarfirði.

Um er að ræða stuðning við fatlað fólk við allar athafnir daglegs lífs með því markmiði að það geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í samfélaginu. Starfið er í vaktavinnu.

Helstu verkefni:
. Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
. Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.

Hæfniskröfur:
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks, rík þjónustulund, jákvæðni, framtakssemi og
samviskusemi.

Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð og vera orðinn 18 ára.

Um er að ræða 100 % starf og 60% starf

Frekari upplýsingar veitir Björn Ágúst Olsen Sigurðsson. Forstöðumaður í síma 897-0916.

Sótt er um störfin á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér.

Frétta og viðburðayfirlit