mobile navigation trigger mobile search trigger

Gönguvikan "Á fætur í Fjarðabyggð" - Dagur 1

22.06.2019

Laugardagur 22. júní.

Gönguvikan "Á fætur í Fjarðabyggð" - Dagur 1

Kl 10:00

Göngu- og bátsferð á Barðsneshorn

Mæting við Safnahúsið (rautt hús) í miðbæ Neskaupstaðar þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.

1. Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingervinga í fjörunni leitað. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes, ca 15 km.

Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson, 698 6980.

2. Gengið frá Barðsnesbænum og út í Mónesskarð. Þaðan að Rauðubjörgum og inn að Barðsnesi aftur. Rólegheita ganga.

Fararstjóri: Sigurborg Hákonardóttir, 893 1583.

3. Gengið frá Barðsnesi upp í Síðuskarð og þaðan á fjallið Sandfell. Ef tími er til verður gengið út brúnina út að Skollaskarði. Glæsilegt útsýni er á þessari leið.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694.

Báturinn tekinn til baka um kl. 18:00.

Verð 5.000.

2.500 kr. fyrir 16 ára og yngri (bátsferð innifalin í verðinu og verða börn að vera í fylgd með fullorðnum).

Nauðsynlegt er að skrá sig í þessar ferðir hjá Sævari Guðjónssyni, 698 6980 eða mjoeyri@mjoeyri.is, fyrir kl. 12:00 föstudaginn 21. júní.

Kl. 21:00

Kvöldvaka í Randulffs-sjúhúsi Eskifirði

Söngskemmtun með söng- og leikkonunni Þórunni Clausen og Andra Bergmann. 

Frítt inn í boði Gönguvikunnar.

Frétta og viðburðayfirlit