mobile navigation trigger mobile search trigger
09.03.2021

Leikskólakennarar við Leikskólann Eyrarvelli

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í fast starf frá 1.ágúst 2021. Leikskólinn er 6 deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Leikskólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 80% til 100% stöður.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
• Reynsla af starfi með börnum
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing leikskólakennara.pdf

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460/847-8232 eða á halla@skolar.fjardabyggd.is eða Sigurveig H. Dagbjartsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 477-1462 eða á sigurveighd@skolar.fjardabyggd.is

Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 3. maí 2021

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit