mobile navigation trigger mobile search trigger
07.06.2021

Leikskólakennarar við Leikskólann Lyngholt.

Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli  og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst/september.

Um er að ræða 100 % stöður sem felast í veikindaafleysingu og afleysingu vegna styttingu vinnutímans og almennur starfsmaður inn á deild eftir hádegi.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing leikskólakennara.pdf

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2021.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit