mobile navigation trigger mobile search trigger
09.03.2021

Staða þroskaþjálfa við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa við Grunnskóla Reyðarfjarðar fyrir skólaárið 2021-2022. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi sem er tilbúnn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks.  Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Reyðarfjarðar stunda um 200 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði þar sem einnig eru til húsa bókasafn staðarins og tónlistarskóli.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í þroskaþjálfun.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing þroskaþjálfa.pdf

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.grunnrey.is. Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Árnadóttir í síma 474 1247 eða á netfangið gudlaug@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2021.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit