mobile navigation trigger mobile search trigger
28.03.2023

Tilkynning frá aðgerðastjórn lögreglu 28. mars kl. 11:40

Fundur var með Veðurstofu í morgun þar sem staðan var metin á austfjörðum m.t.t. snjóflóðahættu og veðurs framundan. Ákveðið var að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað.

Tilkynning frá aðgerðastjórn lögreglu 28. mars kl. 11:40

Það eru götur:

Bakkabakki 1, 2, 3, 4a, 4b, 5, 6a, 6b, 6c, 7, 9, 10, 11, 12, 13 og 15

Bakkavegur 5

Gilsbakki 1, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 10, 12

Mýrargata 30, 32, 39 og 41

Nesbakki 2, 4 og 6

Starmýri 1

Vegna aðstæðna á svæðinu og slæmrar veðurspár á morgun, annað kvöld, verður ekki að svo stöddu tekin ákvörðun um frekari rýmingu. Veðurstofa metur aðstæður og ef þær breytast hvað rýmingu varðar mun það kynnt.

Heimilt er íbúum að sækja vistir og annað frá heimilum sínum á rýmingarsvæði. Vegna veðurs framundan er rétt að nýta daginn í dag. Þeir sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að fara áður í björgunarsveitarhús á sínu svæði þar sem skráning fer fram og fylgd. 

Frétta og viðburðayfirlit