mobile navigation trigger mobile search trigger
23.12.2020

Útboð - Sorphirða og sorpförgun í Fjarðabyggð 2021 - 2025

Sorphirða og sorpförgun í Fjarðabyggð 2021-2025

Fjarðabyggð óskar eftir tilboðum í sorphirðu og sorpförgun í sveitarfélaginu. Verkefnið fellst í söfnun sorps frá heimilum og stofnunum Fjarðabyggðar, flutning lífræns úrgangs til moltugerðar, flutningur úrgangs af söfnunarstöðvum og móttaka á efnum til endurvinnslu. Samningstími er 4,75 ár með ákvæðum um að hægt verði að framlengja hann einu sinni um allt að þrjú ár. Verkkaupi er bæjarsjóður Fjarðabyggðar en umsjón útboðsins er í höndum Verkís hf.

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti. Senda skal tölvupóst á jbh@verkis.is og óska eftir gögnum í verkið.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 29. janúar 2021 kl. 14:00

Frétta og viðburðayfirlit