mobile navigation trigger mobile search trigger
09.04.2014

Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki

Árangur Þróttar í blaki yngri flokka var glæsilegur á nýafstöðnu keppnistímabili en alls náðust fjórir Íslandsmeistaratitlar í hús.

Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
Nýkrýndir Íslandsmeistarar 4. flokki stúlkna, A lið, í Kórnum í Kópavogi. F.v. Amelía, Heiða, Nanna og Eyrún.

Þróttur vann fjóra Íslandsmeistaratitla í yngri flokkum í blaki á nýafstöðnu keppnistímabili. Á Íslandsmeistaramóti 2. og 4. flokks, sem fram fór í Kórnum í Kópavogi um síðustu helgi, hömpuðu bæði A og B lið stúlkna Íslandsmeistaratitli. Hjá piltunum hlaut A lið 4. flokks bronsið og B liðið 5. sæti.

Þá náði A lið 3. flokks stúlkna einnig þeim frábæra árangri að verða íslandsmeistarar ásamt 5. flokki, 5 stigi.

Nánar um Íslandsmeistaramótið í Kórnum

Fleiri myndir:
Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
Íslandsmeistarar 4.flokk stúlkna, B lið. F.v. Jóhanna Lind, Elísa, Íris og María Bóel
Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
3. sæti 4. flokkur pilta, A lið. F.v. Haukur, Adam, Þórarinn og Atli
Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
Íslandsmeistarar 5.flokkur- 5.stig Þróttur Nes.
Glæsilegur árangur hjá yngrideildum Þróttar í blaki
slandsmeistarar 3.flokk stúlkna, A lið, Þróttur Nes.

Frétta og viðburðayfirlit