mobile navigation trigger mobile search trigger
06.02.2014

Dagur leikskólans

Þessar stuttu hnátur komu í heimsókn á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar og sungu í tilefni þess að Dagur leikskólans er í dag.

Dagur leikskólans
Leikskólahnáturnar úr Lyngholti voru að sjálfsögðu í öryggisvestum með fullt af endurskinsmerkjum.

Í tilefni Dags leikskólans skreyttu leikskólabörn úr Lyngholti miðbæ Reyðarfjarðar í dag glæsilegum útilistaverkum sem þau hafa gert. Sjón er sögu ríkari og gefa listaverkin miðbænum skemmtilegt yfirbragð.

Þessar stuttu hnátur komu jafnframt við á bæjarskrifstofunni og sungu fyrir starfsmenn í tilefni dagsins. Að launum fengum þær nýbakaðar kleinur hjá Kristbjörgu matráði.

Frétta og viðburðayfirlit