mobile navigation trigger mobile search trigger
16.01.2015

Fab Lab heillaði ráðherrann

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra og kynnti sér Fab Lab Austurland í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Ráðherra var staddur á Austurlandi vegna kynningarfundar sem fram fór á Austurlandi síðar um daginn.

 

Fab Lab heillaði ráðherrann
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, kynnti sér tæknina að baki Fab Labsins, í heimsókn sinni á Austurlandi nýlega.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, gerði lykkju á leið sína í ferð þegar hún var á Egilsstöðum fyrr í vikunni og kynnti sér Fab Lab-stofu Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað.

Elvar Jónsson, skólameistari, tók á móti ráðherra, sem þótti mikið til Fab Labsins koma. Með ráðherra í för voru Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs, Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála hjá Fjarðabyggð.

Ráherra fékk einnig kynningu á Áfangastaðnum Austurland, sem áfangastaðarhönnuðurinn Daniel Byström leiðir, en að verkefninu standa Ferðamálasamtök Austurlands í samstarfi við Austurbrú og sveitarfélögin á Austurlandi. María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sá um kynninguna, sem fram fór á Hótel Hildibrand í Neskaupstað.

Iðnaðarráðherra var staddur á Austurlandi vegna kynningarfundar um náttúrupassann, sem fram fór síðar um daginn á Egilsstöðum.

Frétta og viðburðayfirlit