mobile navigation trigger mobile search trigger
25.06.2014

Fiskimjöl og tónlist

Tónleikar með fiðluleikaranum Hugo Hilde og hljómsveit verða í Randulffssjóhúsi, næsta fimmtudagskvöld kl. 20:00, í boði Hrynferðar / (Rythmefor, menningarverkefnis Eskju Eskifirði og norska fyrirtækisins BioMar.  Sérstakur gestur verður Garðar Eðvaldsson, saxófónleikari frá Eskifirði.  

 

Fiskimjöl og tónlist
Hugo Hilder, fiðluleikari.

Á morgun, fimmtudag, verða tónleikarnir Rythmefor / Hrynferð í Randulfssjóhúsi, kl. 20:00. Tónleikarnir eru afrakstur samstarfs Eskju á Eskifirði og BioMar í Noregi þar sem ungir tónlistarmenn frá Austurlandi og Vesterålen í Noregi fá tækifæri til að vinna saman.
Á tónleikunum kemur fram norski fiðluleikarinn Hugo Hilde ásamt hljómsveit og sérstakur gestur verður Garðar Eðvaldsson, saxófónleikari frá Eskifirði. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá göngu- og gleðivikunnar Á fætur í Fjarðabyggð.

Þá kemur Hugo Hilde einnig fram á Hernámsdeginum í skemmtidagskrá sem hefst við Íslenska stríðsárasafnið kl. 15:00, sunnudaginn 29. júní nk.

Samstarf Eskju og BioMar

Hrynferð er samstarfsverkefni Eskju á Eskifirði og BioMar í Noregi þar sem ungir tónlistarmenn frá Austurlandi og Vesterålen í Noregi fá tækifæri til að vinna saman. Hljómsveitina skipa auk Hugo og Garðars; Jón Hilmar Kárason á gítar, Þorlákur Ágústsson á bassa og Orri Smárason á trommur. 

Í tvö ár hefur verið tónlistarsamstarf milli fyrirtækjanna Eskju og BioMar. Lengur hafa fyrirtækin átt í viðskiptum þar sem Eskja selur mikið af fiskimjöli til BioMar. Til að efla viðskiptasamböndin, styðja við ungt tónlistarfólk og skapa nánari tengsl milli landanna hafa verið haldnir nokkrir tónleikar á síðustu tveim árum í báðum löndunum. Bæði inn í fyrirtækjunum sjálfum en einnig á nokkrum stöðum um Vesterålen og Austurland.

Tíu ára menningarsamstarf

Menningarsamstarf hefur verið á milli Vesterålen í Noregi og Austurlands í tíu ár fyrir tilstuðlan menningarráða svæðanna beggja. Yfir hundrað menningarverkefni og viðburðir hafa orðið til á þessum tíma. Samstarf Eskju og BioMar er enn einn áfanginn í þessu blómlega samstarfi. 

Sem fyrr segir verða tónleikarnir í Randulfssjóhúsi á Eskifirði og hefjast klukkan 20. 

Fleiri myndir:
Fiskimjöl og tónlist
Fiskimjöl og tónlist

Frétta og viðburðayfirlit