mobile navigation trigger mobile search trigger
30.10.2014

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018

Fimmtudaginn 30. október 2014 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2015 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2016-2018.  Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018 verður þann 4. desember nk.

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018

Fimmtudaginn 30. október 2014 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2015 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2016-2018.  Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018 verður þann 4. desember nk.

Rekstrarafgangur samstæðu A og B hluta á árinu 2015 fyrir fjármagnsliði nemur 763 m.kr.  Þar af er rekstrarafgangur A hluta 298 m.kr.  Að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta að fjárhæð 311 m.kr. og þar af rekstrarafgangur í A hluta að fjárhæð 2 m.kr.  Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir rekstrarafgangi hjá A hluta öll árin sem og B hluta.  

Eigið fé samstæðu nemur 2.853 m.kr. í árslok 2015 og eiginfjárhlutfall 21,7%.  Í árslok 2018 er gert ráð fyrir að eigið fé samstæðu nemi 3.608 m.kr. og eiginfjárhlutfallið verði um 30,4%.  Í A hluta er eigið fé neikvætt um 195 m.kr. í árslok 2015.  Jákvæð afkoma í A hluta í þriggja ára áætlun styrkir eigið fé sem er í árslok 2018 neikvætt um 104 m.kr.

Handbært fé frá rekstri í samstæðunni nemur 1.082 m.kr. á árinu 2015, fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 643 m.kr. og afborganir langtímalána 621 m.kr.  Handbært fé í samstæðu verður 393 m.kr. í árslok 2015 og lækkar um 146 m.kr. frá ársbyrjun. Í þriggja ára áætlun nemur handbært fé frá rekstri í samstæðu á árunum 2016-2018 samtals 3.446 m.kr. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum eru samtals áætlaðir 1.383 m.kr. og afborganir langtímalána samtals 2.446 m.kr. Gert er ráð fyrir 725 m.kr. lántöku til endurfjármögnunar á láni að upphæð 800 m.kr. á árinu 2016.  Þá er handbært fé í árslok 2018 áætlað 771 m.kr.

Skuldaviðmið samstæðu Fjarðabyggðar verður komið undir 150% í árslok 2016 en áætlað 151% í árslok 2015.  Skuldir og skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er áætlað 165% í árslok 2015 og 148% í árslok 2018.  Framlegðarhlutfall (EBIDTA) er áætlað 22-23% í samstæðu og í kringum 12-14% í A-hluta á tímabilinu 2015 – 2018 og helst nokkuð stöðugt í langtímaáætlunum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur verið í góðum samskiptum við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldastöðu sveitarfélagsins.

Stærstu fjárfestingaverkefni næstu ára eru framkvæmdir við nýjan leikskóla á Norðfirði, stækkun hafnarmannvirkja í Neskaupstað, uppbygging við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirð auk ýmissa minni verkefna.

Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er höfð til hliðsjónar við gerð áætlunarinnar en spáin gerir ráð fyrir 3,4% verðbólgu á árinu 2015 og 6,1% meðalhækkun launa milli áranna 2014 og 2015.

Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.

Frétta og viðburðayfirlit