mobile navigation trigger mobile search trigger
13.01.2014

Gjaldskrárhækkanir afturkallaðar

Bæjarráð Fjarðabyggðar ákvað á fundi í morgun, að fella úr gildi hækkun á gjaldskrám leikskóla, skóladagheimila og tónlistarskóla. Gjöld fyrir þessa þjónustu verða þar með þau sömu þriðja árið í röð.

Gjaldskrárhækkanir afturkallaðar
Bæjarráð Fjarðabyggðar ákvað á fundi í morgun, að fella úr gildi hækkun á gjaldskrám leikskóla, skóladagheimila og tónlistarskóla.

Gjöld fyrir þessa þjónustu verða þar með þau sömu og á árunum 2012 og 2013 eða þriðja árið í röð.

Að sögn Páls Björgvins Guðmundssonar, bæjarstjóra, telur sveitarfélagið mikilvægt að stuðlað sé að stöðugu verðlagi í landinu og því hafi verið ákveðið að endurskoða gjaldskrárhækkanir frá síðustu áramótum. Þá hafi bæjarráð horft til þess að hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum yrðu dregnar til baka, í samræmi við áherslur bæjarstjórnar í fjárhagsáætlanagerð á kjörtímabilinu.

Gjaldskrár leikskóla og skóladagheimila hækkuðu um síðustu áramót um 3% og um 10% hjá tónlistarskólum Fjarðabyggðar. Með því móti átti að mæta verðlagshækkunum en umrædd gjöld hafa staðið óbreytt frá 1. janúar 2012. Nemur hækkun verðlags á tímabilinu alls 8,5%. 

Ekki hefur verið gert ráð fyrir að gjaldskrár hækki fyrir skólamáltíðir eða í sundlaugar eða Skíðamiðstöðina Oddsskarði fyrir börn og unglinga. Þá var aldursviðmið í gjaldskrám sundlauga og skíðamiðstöðvar hækkað úr 16 í 18 ár, sem lækkar gjaldtöku umtalsvert í þessum aldurshópi.

Í greinargerð bæjarráðs segir að sveitarfélagið Fjarðabyggð vilji leggja sitt af mörkum til þess að verðlag haldist stöðugt í landinu og afturkalli því hækkanir á umræddum gjaldskrám. Sveitarfélagið hafi undanfarin ár stillt gjaldskrárhækkunum í hóf. Þess í stað hafi verið leitað hagræðingar í rekstri og tekjugrunnur styrktur með fjölgun atvinnutækifæra.

Frétta og viðburðayfirlit