mobile navigation trigger mobile search trigger
02.01.2014

Glímt um Aðalsteinsbikarinn

Fjórðungsglíma Austurlands, keppnin um Aðalsteinsbikarinn, fór fram í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember 2013. Tuttugu og tveir keppendur kepptu í tveimur flokkum karla og þremur flokkum kvenna.

Glímt um Aðalsteinsbikarinn
Sigurvegarar talið frá vinstri; Eva Dögg Jóhannsdóttir, Nikólína Bóel Ólafsdóttir, Leifur Páll Guðmundsson, Bylgja Rún Ólafsdóttir, Haraldur Eggert Ómarsson og Ásmundur Hálfdán Ásmundsson.

Mótið gekk vel fyrir sig og sjá mátti margar fjörugar glímur um hin veglegu verðlaun, Aðalsteinsbikarinn, sem gefinn er í minningu Aðalsteins Eiríkssonar glímukappa á Reyðarfirði. Eftir margar skemmtilegar glímur stóðu eftirtaldir uppi sem sigurvegarar og hömpuðu því Aðalsteinsbikarnum árið 2013.

Stelpur 10-12 ára – Nikólína Bóel Ólafsdóttir

Strákar 10- 12 ára – Leifur Páll Guðmundsson

Meyjar 13-15 ára – Bylgja Rún Ólafsdóttir

Piltar 13- 15 ára – Haraldur Eggert Ómarsson

Konur  - Eva Dögg Jóhannsdóttir

Karlar – Ásmundur Hálfdán Ásmundsson

Fleiri myndir:
Glímt um Aðalsteinsbikarinn
Glímt um Aðalsteinsbikarinn

Frétta og viðburðayfirlit