mobile navigation trigger mobile search trigger
24.03.2021

Hertar sóttvarnir - Þjónusta bæjarskrifstofu

Hertar sóttvarnir sem kynntar voru í dag munu hafa áhrif á starfsemi bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Afgreiðsla bæjarskrifstofunnar verður áfram opin, en fjöldi starfsmanna á staðnum verður takmarkaður og talsverður hluti starfsfólks mun vinna að heiman.

Þess vegna er fólk  hvatt til að nýta sér rafrænar lausnir til samskipta s.s. með símtölum í síma 470 9000,  í gegnum íbúagátt, með tölvupósti, eða í gegnum ábendingakerfið á vef Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit