mobile navigation trigger mobile search trigger
07.02.2014

Íbúðir til leigu á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði

Íbúðalánasjóður auglýsir íbúðir til leigu á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði frá og með 1. mars nk. eða fyrr eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar nk. 

 

 

Íbúðir til leigu á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði


Íbúðirnar sem um ræðir eru:

730 Reyðarfirði Melgerði 11, 2 herb.
750 Fáskrúðsfirði Hlíðargata 57,  4 herb.

Nálgast má myndir og lýsingu á íbúðunum á fasteignavef visir.is  og fasteignavef mbl.is.

Umsókn skal senda Íbúðalánasjóði í tölvupósti á leiga@ils.is. Einnig má sækja um á fasteignavefjunum.

Í tölvupóstinum skal koma fram nafn umsækjanda, kennitala og símanúmer ásamt nafni eignar í "subject". Að umsóknarfresti loknum verður unnið úr umsóknum og öllum umsækjendum svarað.

Þeir sem dregnir eru út fá að skoða eignina og hafa þá kost á að draga umsóknina til baka henti hún ekki.

Sjá úthlutunarreglur Íbúðalánasjóðs

Eftirtaldar íbúðir eru jafnframt enn í auglýsingu á netinu:

730 Reyðarfirði Melgerði 11, 2 herb.
730 Reyðarfirði Búðarmel 14c, raðhús 3 herb.
730 Reyðarfirði Búðarmel 16E, raðhús 4 herb.

Frétta og viðburðayfirlit