Fjarðabyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Leikskólinn Lyngholt“ á Reyðarfirði.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Fjarðabyggð, kt.470698-2099, óskar eftir tilboðum í byggingu viðbyggingar við leikskólan Lyngholt Reyðarfirði.
Um er að ræða stækkun á leikskóla á Reyðarfirði við Heiðarveg 5. Heildarstækkun er um 390 m² á einni hæð. Útboð verksins nær til allra þátta, rif, jarðvinnu, sökkla uppbyggingu, frágangs innan- og utanhúss. Laus búnaður er undanskilinn.
Helstu magntölur:
- Útveggir: um 350 m²
- Þak: um 380 m²
- Innveggir: um 900 m²
Umsjónaraðili útboðs:
Batteríið arkitektar í umboði Fjarðabyggðar.
Hvaleyrarbraut 32 Sími: 545-4700
220 Hafnarfjörður Netfang: siggih@arkitekt.is
Umsjón: Sigurður Harðarson, arkitekt FAI
Óskað er eftir verktökum með reynslu í sambærilegum verkum.
Áhugasamir sæki um útboðsgögn á netfanginu siggih@arkitekt.is og gefi upp nafn fyrirtækis og upplýsingar um tengilið. Gögn verða send út á rafrænu formi frá og með föstudeginum 12. Október 2018.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði ekki síðar en mánudaginn 29 október 2018, kl. 14:00.
Afhending verks er 1.nóvember 2019