mobile navigation trigger mobile search trigger
08.09.2014

Munum eftir útivistarreglunum

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar minnir á útivistarreglur barna og unglinga. Frá og með 1. september mega börn tólf ára börn og yngri vera úti til kl. 20 en þrettán til sextán ára unglingar til kl. 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár.

Munum eftir útivistarreglunum

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar minnir á, að leyfilegur útivistartími barna og unglinga tók breytingum núna um mánaðamótin. Frá þeim tíma mega tólf ára börn og yngri vera úti til kl. 20 en þrettán til sextán ára unglingar mega vera úti til kl. 22.

Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn, sem er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

Aldursmörkin miða við fæðingarár, ekki fæðingardag.

 

Frétta og viðburðayfirlit