mobile navigation trigger mobile search trigger
07.05.2014

Nafnasamkeppni vegna nýrrar Hulduhlíðar

Nú líður að opnun Nýju Hulduhlíðar við Dalbraut á Eskifirði. Í Nýrri Hulduhlíð verða tuttugu íbúðir á þremur heimilum. Leitað er til íbúa Fjarðabyggðar með hugmyndir að nöfnum á þessi þrjú heimili.

Dómnefnd mun fara yfir og velja þau þrjú nöfn sem hún telur best hæfa en dómnefndina skipa:

Svanbjörg Pálsdóttir formaður félagsmálanefndar

Þórhallur Þorvaldsson fyrrverandi stjórnarformaður Hulduhlíðar

Árni Helgason framkvæmdastjóri Hulduhlíðar

Hugmyndum skal skilað fyrir 30. maí nk. til framkvæmdastjóra Hulduhlíðar, Bleiksárhlíð 56, 735 Eskifirði eða með tölvupósti á hulduhlid2@simnet.is

Frétta og viðburðayfirlit