mobile navigation trigger mobile search trigger
16.03.2023

Nýr forseti bæjarstjórnar kosinn

Á bæjarstjórnarfundi fimmtudaginn 16. mars var Birgir Jónsson (Framsóknarflokkur) kosinn með níu atkvæðum sem nýr forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Skipunin mun taka gildi frá og með 16. mars. Mun hann taka við því embætti af Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttir (Fjarðarlistinn), sem gegnt hefur embætti forseta bæjarstjórnar frá 3. júní 2022. Mun Hjördís Seljan  taka við sem fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Ragnar Sigurðsson (Sjálfstæðisflokkur) verður áfram annar varaforseti. 

Á sama fundi var gengið frá ráðningu nýs bæjarstjóra Jónu Árný frá og með 1. apríl og út kjörtímabilið. 

Nýr forseti bæjarstjórnar kosinn

Frétta og viðburðayfirlit