mobile navigation trigger mobile search trigger
02.01.2014

Smári Geirsson sæmdur fálkaorðunni

Smári Geirsson, framhaldsskólakennari í Neskaupstað, hlaut í dag riddarakross hinnar íslensku fálkaorðum.  Orðuna hlýtur Smári fyrir framlag sitt til sögu og framfara á Austurlandi.

Smári Geirsson sæmdur fálkaorðunni

Smári Geirsson, framhaldsskólakennari í Neskaupstað, hlaut á nýársdag riddarakross hinnar íslensku fálkaorðum. Ellefu voru sæmdir orðunni af forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Orðuna hlýtur Smári fyrir framlag sitt til sögu og framfara á Austurlandi.

Smári er fæddur í Neskaupstað 17. janúar árið 1951. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni og síðan háskólagráum í stjórnsýslufræðum, þjóðfélagsfræði og uppeldis- og kennslufræði.

Smári hefur gegnt kennslustörfum í bæði grunn- og framhaldsskóla í Neskaupstað nær óslitið síðan hann lauk háskólaprófi árið 1975. Hann var meðal annars skólameistari við framhaldsskólann og síðar Verkmenntaskólann frá 1983-87. Smári hefur sinnt fjölda félagsstarfa en þekktastur er hann fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum.
Hann sat í bæjarstjórn Neskaupstaðar og síðar Fjarðabyggðar frá 1982-2010 og var bæði forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs. Smári var áberandi í baráttunni fyrir uppbyggingu álvers í Reyðarfirði í störfum sínum fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi en hann var formaður sambandsins 1998-2003.
Smári hefur skrifað fjölda rita um austfirsk málefni, svo sem iðnsögu fjórðungsins, sögu Norðfjarðar og fyrirtækja á staðnum og sögu Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Hann hefur síðustu ár unnið að sagnfræðiriti um hvalveiðar og ritun Sögu Fáskrúðsfjarðar.

Frétt af www.agl.is

Frétta og viðburðayfirlit