mobile navigation trigger mobile search trigger
26.12.2022

Snjómokstur 26. desember

Sökum veðurs er kappkostað við að halda öllum stofnbrautum opnum í Fjarðabyggð. Þegar veður gengur niður verður farið í að moka aðrar leiðir. 

Staðan varðandi snjómokstur er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála. Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.

Snjómokstur 26. desember

Fyrir frekari upplýsingar í tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.

Frétta og viðburðayfirlit