mobile navigation trigger mobile search trigger
17.01.2014

Snjór um víða veröld

Í tilefni af alþjóðlega skíðadeginum World Snow Day, verður frítt á skíði í Oddsskarði sunnudaginn 19. janúar frá kl. 11:00 til 15:00. Í boði verður leikjabraut, hólabraut og pallar. Einnig býðst ókeypis skíða- og brettakennsla ásamt heitu kakói eða kaffi.

Snjór um víða veröld

Skíðamiðstöð Austurlands og Skíðafélag Fjarðabyggðar bjóða öllum frítt á skíði í Oddsskarð sunnudaginn 19. janúar í tilefni af Alþjóðlega skíðadeginum. Svæðið verður opið frá kl. 11:00 til 15:00.

Gestum býðst að spreyta sig á leikjabraut, hólabraut og pöllum. Þá aðstoða þjálfarar Skíðafélagsins byrjendur á skíðum og brettum og í skálanum verður boðið upp á frítt kaffi og kakó.

Allir eru hvattir til þess að mæta í fjallið þennan dag og eiga skemmtilegan dag með fjölskyldu og vinum.

Frítt á skíði í Oddsskarði á Alþjóðlega skíðadeginum

Nánar um Alþjóðlega skíðadaginn, World Snow Day

Frétta og viðburðayfirlit