Þeim íbúum í Fjarðabyggð, sem eru 18 ára og eldri, býðst að taka þátt í viðhorfskönnun sem fer nú fram í sveitarfélögum sem hafa sameinast. Að könnuninni stendur Háskólinn á Akureyri.
02.07.2013
Taktu þátt í viðhorfskönnun HA
Rannsókn á áhrifum af sameiningum sveitarfélaga stendur um þessar mundir yfir hjá Háskólanum á Akureyri.
Liður í þeirri rannsókn er könnun á viðhorfum íbúa í sveitarfélögum sem hafa sameinast á síðustu árum.
Liður í þeirri rannsókn er könnun á viðhorfum íbúa í sveitarfélögum sem hafa sameinast á síðustu árum.
Fjarðabúar, sem eru 18 ára, eru hvattir til að taka þátt með því að fara inn á vefslóðina surveymonkey.com/s/vefkonnun.
Það tekur aðeins 3 til 4 mínútur að svara könnuninni.
Þátttekndur einnig beðnir um að hvetja aðra til að svara, komi þeir því við. Hvert svar skiptir máli. Þeim mun meiri sem þátttakan er því áreiðanlegri verða niðurstöður og unnt verður að gera sjónarmiðum Fjarðabyggðar sérstök skil.
Umsjónarmenn rannsóknarinnar eru Grétar Þór Eyþórsson og Vífill Karlsson og nýta þeir að þessu sinni rafræna fréttamiðla og samfélagsmiðla eins og Fasbókina við framkvæmd könnunarinnar.
Hvorki svör né niðurstöður könnunarinar eru persónugreinanlegar.