mobile navigation trigger mobile search trigger
12.10.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 12. október

Einn er nú skráður á COVID.IS í einangrun á Austurlandi.  Um tímabundna skráningu er að ræða og fylgir lögheimili. Einangrun viðkomandi er þó í öðrum landshluta og verður breytt til samræmis Aðgerðastjórn hvetur íbúa sem fyrr til að gæta varkárni í hvívetna þegar kemur að smitvörnum, muna fjarlægðarmörkin, handþvott og sprittnotkun. Þá áréttar hún tilmæli stjórnvalda um að ferðast ekki til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema brýna nauðsyn beri til. Ástand þar er enn tvísýnt og mikilvægt að við högum okkar málum í samræmi við það.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 12. október

Frétta og viðburðayfirlit