mobile navigation trigger mobile search trigger

Ungmennaráðstefnan ungt fólk og lýðræði 2022

09.09.2022 - 11.09.2022

Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) heldur sína þrettándu ungmennaráðstefnu Ungt fólk og lýðræði dagana 9.-11. september í Héraðsskólanum á Laugarvatni.

Yfirskrift ráðstefnunnar er Ungt fólk og lýðræði – láttu drauminn rætast!

Ungmennaráðstefnan ungt fólk og lýðræði 2022

Eins og nafnið ber með sér er ráðstefnan fyrir ung fólk á aldrinum 16 – 25 ára. Engin skylda er að vera í ungmennaráði eða félagi. Allt ungt fólk á tilsettum aldri er velkomið!

Markmið viðburðarins er gleði og þátttaka. Þátttakendur hljóta ýmis verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið líf og sitt nær samfélag.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi málstofur, samtal við ráðamenn, varðeldur og önnur skemmtilegheit.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 þátttakendur svo það borgar sig að bíða ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum.

Skráning er hafin og stendur til 2. September. Smelltu hér til að skrá þig.                                                                                                                                       

Ef eitthvað er óljóst eða vantar aðstoð við skráningu er velkomið að senda tölvupóst á forstöðumann tómstunda og frístundamála Fjarðabyggðar á netfangið eyrun.i.gunnarsdottir@fjardabyggd.is eða á ungmennarað@umfi.is. Upplýsingar og spurningar er jafnframt hægt að setja inn á Facebook viðburð ráðstefnunnar. Nánari upplýsingar er einnig að finna inn á umfi.is

Frétta og viðburðayfirlit