mobile navigation trigger mobile search trigger
16.09.2025

Heilsudagur að hausti

Nemendur og starfsfólk Eskifjarðar nýttu daginn til útivistar í dag í björtu og fallegu veðri. 

Nemendur á elsta stigi mættu til leiks á Hólmahálsi og þaðan gengu þeir sem leið lá niður á Skeleri. Eftir að hafa spókað sig þar um tíma, borðað pylsur og farið í leiki gengu þeir með ströndinni og plokkuðu rusl. 

Heilsudagur að hausti

Nemendur á miðstigi fóru Kálkshringinn. Þeir hófu leik við kirkjuna og hjóluðu inn í dal, fóru þar yfir brúna innan golfvallar og kíktu á baggalútuna í Hólmatindi.

Nemendur á yngsta stigi stungu sér til sunds og tóku nokkrar salíbunur í rennibrautinni. Á heimleiðinni skein sólin og allir duglegir að ganga aftur í skólann. 

Allir voru sammála um að heilsudagurinn hefði tekist afar vel. Það var sérstaklega ánægjulegt að njóta sólarinnar eftir mikla rigningu síðustu vikur. 

Myndir frá deginum

Frétta og viðburðayfirlit