mobile navigation trigger mobile search trigger
25.01.2023

Álagning fasteignagjalda 2023

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Fjarðabyggð 2023 hafa verið birtir á vefsíðunni island.is og á Íbúagátt Fjarðabyggðar.  Álagningarseðlar eru ekki sendir í pósti.

Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum net- eða heimabanka.  Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum með því að hafa samband í síma 470-9000 eða með því að senda tölvupóst á fjardabyggd@fjardabyggd.is

Álagning fasteignagjalda 2023

Fjármálasvið Fjarðabyggðar annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu, vatnsgjaldi, fráveitugjaldi og sorpgjöldum.  Fasteignagjöld ársins 2023, yfir 27.500 kr., greiðast nú með tíu jöfnum greiðslum 1. hvers mánaðar frá febrúar til  nóvember og eindagi greiðslu er síðasti virki dagur hvers mánaðar.

Gjalddagi fasteignagjalda undir 27.500 kr. er 1. febrúar.

Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu afslátt af fasteignaskatti, fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti fyrir árið 2023 að teknu tilliti til tekjuviðmiða.  Eftir yfirferð Ríkisskattstjóra á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega, framkvæmir Fjármálasvið breytingar á fasteignaskatti. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um afslátt þessara gjalda.  Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2021. Þegar álagning vegna tekna ársins 2022 liggur fyrir að hausti 2023, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða allar breytingar tilkynntar bréflega.

Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi, sé þinglýstur eigandi fasteignar og eigi þar lögheimili.  Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Bæjarstjórn hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar fasteignaskatts á árinu 2023 verði eftirfarandi:

Einstaklingur með tekjur allt að 5.901.857 kr. fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 7.805.071 kr.

Hjón og samskattað sambýlisfólk með tekjur allt að 8.964.169 kr. fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 10.713.384 kr.

Upphæð afsláttar er allt að 88.624 kr.  Afslátturinn er hlutfallslegur og reiknaður af fasteignaskatti viðkomandi eignar.

Fjármálasvið Fjarðabyggðar veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og innheimtu fasteignagjalda í síma 470-9000. Gjaldskrá fasteignagjalda og reglur um afslætti má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

Fjarðabyggð 25. janúar 2023

Snorri Styrkársson

fjármálastjóri Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit