mobile navigation trigger mobile search trigger
13.03.2023

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra staðsetur skrifstofu sína í Fjarðabyggð (breytt dagsetning)

Fimmtudaginn 16. mars, staðsetur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skrifstofu sína í Fjarðabyggð.

Málefni ráðuneytisins eiga við um land allt og staðsetur ráðherra því skrifstofu sína víðs vegar um landið á kjörtímabilinu en verkefnið er einnig liður í markmiði ráðuneytisins um störf óháð staðsetningu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra staðsetur skrifstofu sína í Fjarðabyggð (breytt dagsetning)

Á hverri starfsstöð heimsækir ráðherra ýmis fyrirtæki og stofnanir í viðkomandi sveitarfélagi auk þess að sinna hefðbundnum ráðherrastörfum yfir daginn. Þar að auki eru öll velkomin í opna viðtalstíma sem í Fjarðabyggð fara fram milli kl. 16:00 til 17:00 í Múlanum samvinnuhúsi í Neskaupstað. Í opnum viðtalstímum gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall við ráðherra um málefni ráðuneytisins og viðra hugmyndir eða koma ábendingum á framfæri.

Fleiri myndir:
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra staðsetur skrifstofu sína í Fjarðabyggð (breytt dagsetning)

Frétta og viðburðayfirlit