mobile navigation trigger mobile search trigger
29.04.2019

Ásmundur Hálfdán þrefaldur evrópumeistari í Keltneskum fangbrögðum

Reyðfirðingurinn Ásmundur Hálfdán Ásmundsson varð um helgina þrefaldur evrópumeistari í Keltneskum fangbrögðum á Evrópumótinu sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina.

Ásmundur Hálfdán þrefaldur evrópumeistari í Keltneskum fangbrögðum
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson (fyrir miðju) varð þrefaldur evrópumeistari í Keltneskum Fangbrögðum um helgina

Ásmundur sigraði í sínum þyngdarflokk í öllum þeim greinum sem keppt er í á Evrópumótinu, Glímu, Gouren og Backhold.

Þá varð Reyðfirðingurinn Kristín Embla Guðjónsdóttir evrópumeistari í Íslenskri Glímu í -70 kg. flokki á mótinu.

Frétta og viðburðayfirlit