mobile navigation trigger mobile search trigger
05.03.2021

Austurland Freeride Festival hefst um helgina

Austurland Freeride Festival er ný fjallaskíða- og brettahátíð sem haldin verður í annað sinn í Fjarðabyggð um helgina. Áhersla er lögð á að njóta náttúrunnar í Fjarðabyggð undir leiðsögn vanra, staðkunnra fjallamanna. 

Austurland Freeride Festival hefst um helgina

Ýmis konar menningarviðburðir verða í gangi á svæðinu eins og t.d tónleikar, kvöldvökur og matarupplifanir.

  • Skörðin tvö – Hér er ferðast í gegnum tvenn fjallaskörð sem bæði eru í um 800 metra hæð á einum degi og endað í öðrum firði en byrjað var.
  • Tindurinn – Hér er farið upp á 1.000 metra tind og skíðað niðu
  • Byrjendanámskeið á fjallaskíðum og split boards sem fram færi í Oddskarði.
  • Snjóflóðanámskeið þar sem farið er yfir helstu hættur á fjöllum og helstu viðbrögð við þeim
  • Almenn kennsla á búnaðinn
  • Síðasti dagurinn - farið er upp skíðaliftuna í Oddskarði og gengið áfram í fylgd vanra leiðsögumanna áður en rennt sér er niður að snjólínu.

Nánari upplýsingar má finna á Fésbókarsíðu AFF

Frétta og viðburðayfirlit