mobile navigation trigger mobile search trigger
09.11.2020

Bann við lausagöngu hunda í Fjarðabyggð

Fjarðabyggð býður upp á mikið úrval útvistarsvæða innan sem utan þéttbýlis. Um þessar mundir eru margir á ferðinni á þessum svæðum.  Hundaeigendur eru hvattir til þess að virða lausagöngubann innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins sem og í fólkvöngum og friðlöndum. Á þeim svæðum sem lausagöngubann gildir er skylt að hafa hund í bandi, á þetta m.a.  við um göngustíga ofan byggðar, fólkvang Neskaupstaðar og Hólmanes.

Frétta og viðburðayfirlit