mobile navigation trigger mobile search trigger

Beðið eftir Beckett

25.09.2020

Klukkan 20:00

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Senuþjófinn sýnir leikritið "Beðið eftir Beckett" í Valhöll á Eskifirði föstudaginn 25. september kl. 21:00.

Beðið eftir Beckett
Í þessari guðdómlegu kómedíu bíður Leikari nokkur þess að Samuel Beckett skrifi fyrir sig nýtt leikrit. Hann styttir sér stundir með því að máta sig við persónur úr eldri leikritum skáldsins og bregður fyrir sig ögn af Dante, Artaud og Hallgrími Péturssyni. Eins og í sönnum grískum harmleik á Leikarinn von á sendiboða GuðannaSýningin verður haldin 25.09. klukkan 20:00 í Valhöll á Eskifirði og er unnin í einlægu samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Leikari: Elfar Logi Hannesson
Sendiboði: Gyða Árnadóttir
Leikmynd og búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Tónlist: Hjörleifur Valsson
Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
Handrit og leikstjórn: Trausti Ólafsson
Miðasala er hafin á tix.is
Við minnum fólk á þær reglur sem eru gildi vegna COVID-19 en frekari upplýsingar er að finna hér https://bit.ly/2AUdvha

Frétta og viðburðayfirlit