mobile navigation trigger mobile search trigger
02.08.2023

Deiliskipulag Fólkvangur Neskaupstaðar

Samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi Fólkvangur Neskaupstaðar - Útivistasvæði. Um er að ræða breytingu á skipulagsmörkum til samræmis við nýtt aðliggjandi deiliskipulag fyrir Nes- og Bakkagil.

Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 og einnig til sýnis á heimasíðu Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is.  

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar annars vegar til 30. Ágúst 2023.

Skila skal athugasemdum á skrifstofu Fjarðabyggða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

Fólkvangur Nes Útivistarsvæði

Virðingarfyllst,

Aron Leví Beck
Skipulagsfulltrúi Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit