mobile navigation trigger mobile search trigger
18.12.2023

Eingöngu tekið á móti reikningum með rafrænum hætti frá 1. janúar 2024

Frá og með 1. janúar 2024 verður eingöngu tekið á móti reikningum með rafrænum hætti hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess.

Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.

Eingöngu tekið á móti reikningum með rafrænum hætti frá 1. janúar 2024

Mælt er með að söluaðilar gefi út rafræna reikninga í sínum sölukerfum og miðli í gegnum skeytamiðlara.

Aðilar sem ekki hafa rafrænt reikningakerfi geta sent sveitarfélaginu reikning á rafrænu formi sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins. Smellt er á hnappinn "Rafrænir reikningar" á forsíðu og fyllt út form sem upp kemur.

Pappírsreikningar sem eru útgefnir eftir 1. janúar 2024 munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.

Frétta og viðburðayfirlit