mobile navigation trigger mobile search trigger
24.01.2023

Ertu í staðsetningarlausu starfi?

Ertu í staðsetningarlausu starfi? Viltu prófa að vinna í friðsældinni inn á milli fjallanna á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði eða Stöðvarfirði? Krossgötum Austurlands á Egilsstöðum? Menningarbænum Seyðisfirði? Í sveitasælunni í Fljótsdal? 

Ertu í staðsetningarlausu starfi?

Fjölbreyttum störfum má sinna nánast hvar og hvenær sem er. Hér má finna upplýsingar um húsnæði á Austurlandi sem hentar öllum sem sinna óstaðbundnum störfum. Í boði er húsnæði um allan landshlutann frá Vopnafirði til Djúpavogs og allt þar á milli.

Á Austurlandi eru fjölmargir byggðakjarnar hver með sína sérstöðu. Við höfum undanfarið lært að fjölbreyttum störfum má sinna nánast hvar sem er og hvenær sem er sé aðgengi að interneti gott. Sífellt fleiri sjá tækifæri í því að breyta um umhverfi og prófa að vinna annars staðar en „heima“. Við bjóðum ykkur því hér með velkomin til að vinna óstaðbundin störf á Austurlandi.

Frétta og viðburðayfirlit