mobile navigation trigger mobile search trigger
30.05.2025

Framkvæmdir hefjast í Drangagili

Framkvæmdir við Drangargil hefjast nú á næstu dögum. Til stendur að framkvæmdartíminn verði sumrin 2025, 2026 og 2027.

Framkvæmdir hefjast í Drangagili

Verktaki er Köfunarþjónustan ehf. og mun vinna fara fram sex daga vikunnar, frá mánudegi til laugardags, í allt að 10 klukkustundir á dag.

Í fyrstu verður unnið á svæði við sjóinn við enda flugbrautar. Sunnudag og mánudag hefst, ef veður leyfir, þyrluflug með búnað sem þarf til verksins. Við minnum á að önnur tilkynning verður birt fljótlega með upplýsingum um lokanir fyrir gangandi umferð neðan við verkstað.

Við biðjum íbúa og gesti að sýna varkárni og virða merkingar á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur.

Frétta og viðburðayfirlit