mobile navigation trigger mobile search trigger
01.10.2021

Götulýsing í Fjarðabyggð

Að venju hefur ábendingum sem varða götulýsingu í Fjarðabyggð fjölgað að undanförnu í takt við það að dagana er tekið að stytta. Upp á síðkastið hefur verið unnið að lagfæringum á kerfinu og einnig er verið að skipta um þær perur sem vantar.

Götulýsing í Fjarðabyggð

Á Fáskrúðsfirði er vinnunni að ljúka og í beinu framhaldi af því verður henni haldið áfram í öðrum bæjarkjörnum Fjarðabyggðar og ætti því verkefni að vera lokið á allra næstu dögum.

Viðhald götulýsingar verður síðan reynt að vinna jafnt og þétt í vetur, og bregðast við þeim bilunum sem verða og skipta út perum sem bila eftir ákveðnum verkferlum. Allar ábendingar varðandi götulýsingu eru að sjálfögðu áfram vel þegnar.

Frétta og viðburðayfirlit