mobile navigation trigger mobile search trigger
15.09.2021

Grunnskóli Reyðarfjarðar og Leikskólinn Lyngholt verða lokaðir fimmtudaginn 16.september

Greiningu þeirra sýna sem tekin voru í dag eftir að grunur kom upp um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar er ekki að fullu lokið. Þó hafa smit verið staðfest í Grunnskóla Reyðarfjarðar og á Leikskólanum Lyngholti, en greiningu sýna er enn ekki lokið.

Vegna þess verða bæði Leikskólinn Lyngholt og Grunnskóli Reyðarfjarðar lokaðir fimmtudaginn 16. september, meðan unnið er að smitrakningu. Allir foreldrar eiga að hafa verið upplýstir um þetta með tölvupósti.

Nánari upplýsingar verða gefnar út þegar þær liggja fyrir á morgun.

Grunnskóli Reyðarfjarðar og Leikskólinn Lyngholt verða lokaðir fimmtudaginn 16.september

Frétta og viðburðayfirlit