mobile navigation trigger mobile search trigger
15.09.2021

Grunur um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar

Upp hefur komið grunur um smit af völdum COVID-19 í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Í samráði við rakningarteymi var ákveðið að skólinn verði lokaður í dag, miðvikudaginn 15. september, meðan unnið er að því að ná utan um málið. Allir starfsmenn og þeir nemendur sem talið er að gætu verið útsettir fyrir smiti hafa verið beðnir um að fara í sýnatöku. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar þær liggja fyrir.

Grunur um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar

Frétta og viðburðayfirlit