mobile navigation trigger mobile search trigger
05.03.2020

Hafnarvörður

Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf Hafnarvarðar við Fjarðabyggðarhafnir. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta.

Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar, auk annarra hafnarstarfa. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur er hafnir innan Fjarðabyggðar, en meginstarfsstöð er Norðfjarðarhöfn.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur
• Vigtarréttindi er kostur
• Bílpróf
• Góð íslensku kunnátta
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
• Hæfni í mannlegum samskiptum

Starfslýsing Hafnarvörður.pdf

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars nk. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ásgeir Karlsson, gunnar.a.karlsson@fjardabyggd.is eða í síma 864-0227.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit