mobile navigation trigger mobile search trigger
05.01.2022

Hláka og vatnsveður

Í kvöld og á morgun, fimmtudaginn 6. janúar, mun veður fara hlýnandi í Fjarðabyggð og þessum hlýindum gæti fylgt talverð rigning skv. veðurspá. Talsverður snjór er víða í byggðakjörnum eftir snjókomu síðustu daga og unnið hefur verið að því í dag að hreinsa frá niðurföllum á götum Fjarðabyggðar og losa snjóruðninga. Íbúar eru beðnir að fara varlega þar sem vatn og hálka geta safnast fyrir á götum. Einnig er gott að huga að niðurföllum við hús og að leysingavatn eigi greiða leið að þeim.

Hláka og vatnsveður
Fleiri myndir:
Hláka og vatnsveður

Frétta og viðburðayfirlit